144. löggjafarþing — 107. fundur,  15. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[14:54]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta atvinnuvn. (Lilja Rafney Magnúsdóttir) (Vg) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Ég er orðin langþreytt á orðum hv. þm. Páls Jóhanns Pálssonar þegar hann vísar til þess að einstaklingur, fyrrverandi ráðherra, Svandís Svavarsdóttir, hafi verið dreginn fyrir Hæstarétt. Var það ekki stjórnsýsluákvörðun sem fór fyrir Hæstarétt? Hefur það ekki gerst oft í gegnum tíðina að stjórnsýsluákvarðanir á vegum ríkisins hafi farið þá leið? Þetta er orðið mjög ósmekklegt, svo vægt sé til orða tekið.

En af því að sum okkar erum búin að vera að horfa á sauðburð í beinni útsendingu og var bara gaman að því þá þurftu bændur stundum að grípa inn í burðinn hjá ánum og hjálpa til. Hv. þm. Páll Jóhann Pálsson virðist halda að meiri hluti atvinnuveganefndar hafi það hlutverk að sinna eins konar sauðburði, menn séu að aðstoða verkefnisstjórn við burðinn, að koma virkjunarkostum í gegn og grípi inn í með inngripi. [Hlátur í þingsal.] Þetta er ekki sauðburður, hv. þm. Páll Jóhann Pálsson. (Gripið fram í: Heyr, heyr!)