144. löggjafarþing — 107. fundur,  15. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[16:13]
Horfa

Forseti (Valgerður Gunnarsdóttir):

Forseti vill að gefnu tilefni biðja hv. þm. Katrínu Júlíusdóttur afsökunar á því að hafa beint til hennar þeim ummælum að hv. þingmaður héldi sig sem næst umræðuefninu. Það er alveg rétt hjá hv. þingmanni að fleiri hafa farið út fyrir umræðuefnið og það er ekki rétt að hún ein gjaldi þess.