144. löggjafarþing — 107. fundur,  15. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[16:38]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F) (um fundarstjórn):

Hæstv. forseti. Ég vil byrja á því að hrósa hæstv. forseta fyrir fyrirmyndarbrag á fundarstjórn forseta þar sem hann bað hv. þm. Katrínu Júlíusdóttur afsökunar eftir að hafa gert athugasemd við ræðu hennar, sem var von því að umræðan á það til að fara út um víðan völl og auðvitað eru kjaramálin og staða á vinnumarkaði rædd hér. Það kom ágætlega fram í ræðu hv. þm. Jóns Þórs Ólafssonar að hér er auðvitað um skipulagðan vinnumarkað að ræða þar sem samið er um kaup og kjör af heildarsamtökum launþega og atvinnurekenda. Það má vel vera að ríkisstjórnin geti þar komið að sátt á lokametrunum, sem ég hef fulla trú á að muni gerast og að hún sé verið að vinna að. Við skulum öll vona að það gerist.

Hitt vil ég segja að að nefndaráliti meiri hluta, með því máli sem við ræðum hér, komu yfir 110 aðilar (Forseti hringir.) og gáfu umsagnir og við eigum að bera virðingu fyrir því.