144. löggjafarþing — 107. fundur,  15. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[16:54]
Horfa

Katrín Jakobsdóttir (Vg):

Herra forseti. Hér er til umræðu tillaga til þingsályktunar um breytingu á þingsályktun um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, gjarnan nefnd rammaáætlun. Upphafleg tillaga hæstv. umhverfisráðherra gerði ráð fyrir einni breytingu á þeirri áætlun, þ.e. að Hvammsvirkjun í Þjórsá mundi færast úr biðflokki yfir í nýtingu. En eins og kunnugt er eftir þær umræður sem hér hafa verið, fyrst og fremst í umræðum um málið en líka um fundarstjórn forseta, þá breyttist þetta mál með þeim hætti að meiri hluti hv. atvinnuveganefndar leggur til fjóra nýja virkjunarkosti. Því má segja að við séum að ræða allt annað mál, herra forseti, í síðari umræðu um þingsályktunartillöguna, en það sem upphaflega var lagt fram.

Ég verð að segja að illur grunur vaknaði hjá mér strax í byrjun þegar ákveðið var að vísa tillögu þáverandi hæstv. umhverfisráðherra, sem byggði á mati verkefnisstjórnar rammaáætlunar, til hv. atvinnuveganefndar en ekki hv. umhverfis- og samgöngunefndar sem farið hafði með málefni rammaáætlunar og hafði meira að segja fengið verkefnisstjórn rammaáætlunar óformlega á sinn fund til að undirbúa sig undir þá tillögu sem við áttum von á. Þá var það ákveðið af meiri hluta þingsins að senda málið til hv. atvinnuveganefndar á þeim forsendum að hér væri um að ræða tilflutning úr bið yfir í nýtingu, ef hins vegar væri um að ræða tilflutning úr bið yfir í vernd mundi því máli vera vísað til hv. umhverfis- og samgöngunefndar.

Þetta þótti mér og þykir enn dæmalaus málflutningur sem sýnir ekki skilning á heildarhugsun rammaáætlunar sem er auðvitað að raða hugsanlegum virkjunum í röð þannig að við metum hverja hugsanlega virkjun í samhengi við aðrar og röðum þeim þannig í verndarflokk, biðflokk þar sem gögn vantar eða nýtingarflokk. Því hefur enn ekki verið svarað af yfirstjórn þingsins hvort ætlunin sé þá, ef lagt verður til af verkefnisstjórn rammaáætlunar að færa kosti yfir í vernd, að leggja þær tillögur sérstaklega fram og vísa til hv. umhverfisnefndar. Ég held að hugsunin á bak við þessa nefndavísun hafi verið sú að hér ætti að fara fram með fleiri kosti þvert á ferlið sem lögbundið er í lögum um rammaáætlun. Ég held að það hafi verið hugsunin. Mér þykir það leiðinlegt því ég sagði í upphafi að ég teldi að þetta væri nú einhver slysagangur, einhver flumbrugangur í nefndavísun sem hefði ekki endilega neina pólitíska merkingu, en ég er farin að hallast að því eins og málið hefur þróast að þetta hafi verið ætlunin. Það kemur á daginn að hv. þingmenn meiri hluta atvinnuveganefndar, hv. þm. Jón Gunnarsson, Haraldur Benediktsson, Ásmundur Friðriksson, Páll Jóhann Pálsson, Þorsteinn Sæmundsson og Þórunn Egilsdóttir, sem skrifa undir nefndarálit meiri hlutans, telja greinilega að þau hafi verið sett sem einhvers konar ný verkefnisstjórn miðað við þær ræður sem hér hafa verið fluttar og miðað við nefndarálitið þar sem þau leggja sjálfstætt mat á fjóra aðra virkjunarkosti og gera tillögu um þá hér. Að vísu er nú búið að tilkynna okkur, sem er lýsandi fyrir verkstjórnina í þessu máli sem er öll með hreinum endemum, af hæstv. forsætisráðherra að hæstv. umhverfisráðherra sé búinn að gera eitthvert samkomulag við meiri hlutann, þannig að hugsanlega kemur fram breytingartillaga við breytingartillöguna hvað sem við getum sagt um það form allt saman. En hér eru sem sagt lagðir til fjórir nýir kostir, Urriðafossvirkjun, Holtavirkjun, Skrokkölduvirkjun og Hagavatnsvirkjun og um það erum við að ræða og fáum til þess eina umræðu.

Þegar maður heyrir hv. þingmenn meiri hlutans barma sér alveg ægilega undan þeirri umræðu sem hér hefur farið fram yfir því að við séum að tala ægilega mikið, þá í fyrsta lagi verð ég að segja að ég hef ekki nokkra einustu samúð með þessu væli, mér finnst þetta nefnilega óttalegt væl, herra forseti, [Kliður í hliðarsal.] og biðst afsökunar á að nota slík orð, verri orð hafa raunar verið notuð um okkar málflutning. Hér er um að ræða stórt mál og við fáum eingöngu eina umræðu til að ræða það, sem er í hæsta máta óeðlilegt því hér er verið að ganga fram hjá lögbundnum ferlum — herra forseti, það væri nú gott að hafa hljóð til að heyra í sjálfum sér hér í pontu. Hér er gengið fram hjá lögbundnum ferlum sem er kveðið á um með lögum um rammaáætlun þar sem verkefnisstjórn er sett til þess að ljúka vinnu. Það hefur hins vegar komið fram og kemur mjög skýrt fram í sjálfri þingsályktunartillögunni frá hæstv. umhverfisráðherra að verkefnisstjórn hefur ekki lokið umfjöllun um þá fjóra kosti sem hér eru til skoðunar. Hér kemur fram að hæstv. ráðherra vísaði átta kostum til verkefnisstjórnarinnar sem hann bað sérstaklega um að yrðu metnir, það voru hinir þrír virkjunarkostir sem hér hafa verið nefndir í neðri hluta Þjórsár, það var Skrokkölduvirkjun og Hágöngur I og II, það var Hagavatnsvirkjun og Hólmsárvirkjun við Atley. Í framhaldinu fór verkefnisstjórnin yfir þessi mál og um niðurstöður hennar má lesa í greinargerð hæstv. ráðherra. Þar kemur fram, og vil ég lesa úr greinargerðinni, með leyfi virðulegs forseta:

„Hvað varðar virkjunarkostina þrjá við Skrokköldu og Hágöngur var snemma ljóst að ekki yrði mögulegt að afla þeirra gagna sem upp á vantaði þannig að hægt væri að leggja fram endurskoðaða tillögu á Alþingi í febrúar 2014, enda ljóst að endurmeta þyrfti m.a. áhrif virkjananna á víðerni og verndarsvæði Vatnajökulsþjóðgarðs, svo og samlegðaráhrif virkjananna og flutningskerfa raforku. Verkefnisstjórn taldi sig ekki hafa forsendur til að meta þessa þætti án aðkomu fullskipaðra faghópa, enda óljóst hvort slíkt vinnuferli stæðist ákvæði 1. mgr. 9. gr. laga nr. 48/2011, um verndar- og orkunýtingaráætlun. Formaður verkefnisstjórnar gerði ráðherra umhverfis- og auðlindamála grein fyrir þessari niðurstöðu verkefnisstjórnarinnar á fundi þann 8. október 2013.“

Hér heldur svo áfram:

„Hvað Hagavatnsvirkjun varðar var ljóst eftir vettvangsferð verkefnisstjórnar að auk óvissu sem áður var getið varðandi áhrif á sandfok, náttúrulega landmótun, útivist og ferðaþjónustu var óljóst hvernig tengingu virkjunarinnar við flutningskerfi yrði háttað, þar með hefði skapast ný óvissa um fyrirkomulag og áhrif línulagna frá virkjuninni og samlegðaráhrif virkjunar og flutningskerfis.“

Verkefnisstjórn taldi sig heldur ekki hafa forsendur til að ljúka mati þessa kostar án aðkomu fullskipaðra faghópa og þessu var ráðherra gerð grein fyrir.

Þetta rímar auðvitað við það álit sem hér liggur líka fyrir frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu þar sem beinlínis segir, með leyfi forseta:

„Í ljósi fyrri umfjöllunar verður að telja að þar sem verkefnisstjórn fjallaði ekki efnislega um fimm tilgreinda virkjunarkosti, þ.e. Skrokköldu, Hágöngur I og II, Hagavatn og Hólmsá v/Atley, eins og lög nr. 48/2011 gera ráð fyrir, séu umræddir virkjunarkostir enn þá í umfjöllun hjá verkefnisstjórn að mati umhverfis- og auðlindaráðuneytisins. Verkefnisstjórnin hefur ekki skilað tillögu um flokkun þessara kosta til ráðherra og þingsályktunin sem nú liggur fyrir Alþingi“— þ.e. hin upprunalega — „tekur ekki til þeirra kosta. Það er því mat umhverfis- og auðlindaráðuneytisins að lög nr. 48/2011 geri ekki ráð fyrir að Alþingi geti gert breytingar á flokkun þessara kosta þar sem lögbundið ferli verndar- og orkunýtingaráætlunar hefur ekki farið fram hvað þá varðar.“

Þetta gerist nú ekki mikið skýrara, herra forseti. Lögbundið ferli hefur ekki farið fram. Þó að þingsköpin séu vissulega mjög rúm með það að hv. þingmenn geti gert ýmsar tillögur þá geta þær tillögur auðvitað ekki gengið á svig við lög nema lögum sé breytt. Þetta hefði ég talið nokkuð augljóst, herra forseti, og ítreka þær athugasemdir sem ég hef gert við úrskurð virðulegs forseta sem í raun og veru er orðaður með mjög opnu orðalagi, þ.e. sagt er að „rök hnígi til þess“. Mönnum sýnist að rök hnígi til þess að umfjöllun hafi verið lokið þrátt fyrir þetta skýra minnisblað frá umhverfis- og auðlindaráðuneyti.

Ég spurði hæstv. umhverfisráðherra í dag í andsvari þegar hún hélt hér ræðu hvort hún vantreysti beinlínis verkefnisstjórn rammaáætlunar í ljósi þess að hún virtist líta svo á að það væri nægjanleg málamiðlun — málamiðlun sem við höfum samt auðvitað ekki séð heldur bara heyrt um frá hæstv. forsætisráðherra — að sleppa Hagavatni, í ljósi þess að þarna væri Skrokkalda beinlínis tiltekin líka sem ekki hefði farið fram lögbundin umfjöllun um, fyrir utan að verkefnisstjórn hefur auðvitað ekki lokið umfjöllun um Urriðafossvirkjun né Holtavirkjun eins og kemur fram í greinargerðinni með tillögunni. Hæstv. ráðherra vildi meina að hún legði mikið traust á verkefnisstjórnina en samt ætlar hún ekki eða a.m.k. gerir hún það ekki að tillögu sinni að við fylgjum ráðum verkefnisstjórnarinnar.

Þetta er auðvitað dapurlegra og þyngra en tárum taki. Ég hef setið á þingi síðan árið 2007, herra forseti, og tók þátt í umræðu um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis og las þá skýrslu og las gagnrýnina sem þar var sett fram á stjórnmálamenninguna á Íslandi, stjórnmálamenninguna á Alþingi, menninguna innan stjórnmálaflokkanna. Eitt af því sem þar var reifað í ítarlegu máli var nauðsyn þess að stjórnmálamenn hlustuðu eftir því sem fagmenn hefðu fram að færa og hefðu að segja. Það að reyna að leiða þetta deilumál, þetta stóra deilumál á Íslandi sem lýtur að því hvernig við nýtum okkar auðlindir, tilraunin til að leiða það í eitthvert eðlilegt ferli var auðvitað tilgangurinn með lögum um rammaáætlun, en þá verðum við að ætlast til þess að þeim sé fylgt.

Það er ekki nægjanlegt að setja lagaramma þar sem við reynum að fela fagmönnum að raða virkjunarkostum ef við ætlum ekki að hlusta svo á þá. Og við sem sátum hér á síðasta kjörtímabili samþykktum tillögu 63:0 um að við ætluðum svo sannarlega að gera eitthvað í því sem kom fram í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis, bæta stjórnmálamenninguna. Já, við ætlum að gera það, sögðum við öll. Við sögðum það öll. Að vísu voru ekki margir af þeim hv. þingmönnum sem skrifa undir nefndarálitið hér á síðasta kjörtímabili, raunar bara einn held ég, en það breytir því ekki að maður hefði haldið að slíkt ætti að skila sér áfram. Hluti af því er að hlusta á fagmenn og þá dugir ekki til að koma hér upp eins og hv. þingmenn meiri hluta atvinnuveganefndar hafa gert og vitna til sveitarstjórnarmanna sem eru mjög áfram um að fá þessar virkjanir af stað eftir því sem hér kemur fram. Það er bara ekki það sama og faglegt mat. Sveitarstjórnarmennirnir eru í pólitík alveg eins og við hin. Það er ekki það sama og að fá faglegt mat og bíða eftir faglegu mati verkefnisstjórnar, það finnst mér ekki svara því sem við höfum bent á að það er verkefnisstjórnar að ljúka sinni umfjöllun. Hv. atvinnuveganefnd getur gert tillögur um breytingar, en hún verður að bíða eftir því að verkefnisstjórn hafi lokið umfjöllun. Hún getur gert tillögur um breytingar þegar verkefnisstjórn hefur lokið umfjöllun. Þá er hægt að takast á um það á pólitískum vettvangi, jafnvel þótt fagaðilar leggi eitthvað til þá getum við tekist á um það ef hv. þingmenn vilja breyta því og hafa áhrif á það, en þeir bíða ekki einu sinni eftir því að verkefnisstjórnin ljúki sínu starfi.

Af hverju erum við að tala svona mikið um þetta? Af hverju finnst okkur þetta skipta svona miklu máli? Jú, það er af því við erum að ræða um atvinnuuppbyggingu til framtíðar, ekki satt? Við skulum átta okkur á því, herra forseti, að samkvæmt upplýsingum Orkustofnunar þá er búið að virkja 50% af öllu virkjanlegu vatnsafli og jarðvarma á Íslandi. Það hefur gerst á ekkert mjög löngum tíma. Við þekkjum sögu rafvæðingar á Íslandi og fyrstu virkjanirnar sem voru byggðar hér, Sogsvirkjanirnar, voru gríðarlega mikilvægar fyrir uppbyggingu atvinnulífs á Íslandi á þeim tíma. Við þekkjum líka söguna á bak við það þegar ákveðið var að fara af stað, m.a. fyrir tilstuðlan þróunarfjár utan úr heimi, í stóriðjuuppbyggingu og ráðist var í að byggja álver í Straumsvík. Þetta var ákveðin atvinnustefna sem var rekin um miðja öldina, 20. öldina. En við verðum auðvitað að færa okkur yfir á þá öld sem við lifum á og það sem hefur gerst síðan. Nú búum við á þessu landi þar sem við erum að reyna að byggja upp fleiri stoðir í atvinnuuppbyggingu. Ég þarf ekkert að spyrja hv. þingmenn að því, þeir vita það jafn vel og ég að stærsta útflutningsgrein okkar um þessar mundir er ferðaþjónusta. Það mátti nú ekki einu sinni ræða ferðaþjónustu fyrir svona tíu árum, hún þótti bara ekkert merkileg, þótti ekkert merkileg, hún yrði aldrei framtíðaratvinnuvegur. Nú er hún stærsti útflutningsatvinnuvegurinn um þessar mundir og allir ætla sér að taka þátt í því. En af hverju koma þessir ferðamenn hingað? Koma þeir til að horfa á virkjanir? Nei, þeir koma út af náttúrunni.

Þegar við stöndum frammi fyrir því að þurfa að gæta ákveðins jafnvægis í því hvernig við byggjum upp atvinnuvegi okkar þá skulum við horfa á það að við höfum þegar nýtt 50% af öllu virkjanlegu vatnsafli og jarðvarma. Við höfum þegar byggt talsvert af iðjuverum, ég get vel skilið þá sem vilja verja þau og horfa til einhverrar framtíðaruppbyggingar í því, það má vel hugsa sér framtíðaruppbyggingu áfram þar að einhverju leyti, t.d. á sviði gagnavera, en horfum til þess að við erum búin að gera ansi mikið á þeim stutta tíma sem við höfum haft yfir tækninni að ráða til að virkja þær auðlindir sem við eigum.

Það er mikilvægt að við skiljum einhverjar ákvarðanir eftir til lengri tíma, en það er líka mikilvægt að við áttum okkur á því að það fólk sem hingað kemur mætir hérna til að horfa á þessa fossa. Þegar við ræðum um að ágangur ferðamanna sé orðinn of mikill, því hann er sannarlega orðinn það víða um landið, ég nefni Gullfoss og Geysi, þá má líta til þess að við eigum t.d. þrjá fossa í Þjórsá rétt í næsta nágrenni, Dynk, Gljúfurleitarfoss og Kjálkaversfoss og ef hægt væri að gera þá aðgengilegri fyrir ferðamenn mætti búa til sannkallaðan ferðamannastað sem mundi draga að sér tugþúsundir ferðamanna á hverju ári — ef við horfðum á þá sem svona auðlind. En mér finnst því miður umræðan hér inni snúast fyrst og fremst um einhliða atvinnuuppbyggingu. Við eigum sjávarútveginn líka, ekki gleyma því. Á því eigum við að byggja. Við eigum að byggja á mörgum stoðum. Við eigum ekki bara að horfa á nýtingu orkuauðlindarinnar til iðnaðar, við eigum að horfa til ferðaþjónustunnar, við eigum að horfa til sjávarauðlindarinnar, rannsóknanna og nýsköpunarinnar sem tengist auðvitað öllum okkar auðlindum en líka hugviti. Á það eigum við að horfa. Það er það sem almenningur í landinu er búinn að átta sig á, 60% fólks samkvæmt nýrri skoðanakönnun eru fylgjandi því að stofna þjóðgarð á miðhálendinu. Ef ráðist verður í Skrokkölduvirkjun þá erum við að fara inn á þetta sama miðhálendi. Það þýðir ekki að segja að virkjunin sjáist nú ekki mjög mikið af því að stór hluti verði neðanjarðar. Það breytir því ekki að þá förum við inn á ósnert svæði, við röskum því með mannvirkjum og við getum ekki horft fram hjá því. Við förum inn á svæði sem við gætum ákveðið hér og nú að gera að þjóðgarði.

Af hverju finnst mér það góð hugmynd? Jú, þau víðerni sem við eigum á miðhálendinu eru stærstu ósnortnu víðerni í Evrópu. Stærstu ósnortnu víðerni í Evrópu. Þegar við fljúgum til útlanda og fljúgum yfir Evrópu þá sjáum alla litlu ferkantana, öll litlu frímerkin sem er búið að deiliskipuleggja niður í smæstu sentimetra og svo komum við heim og ég veit að öllum hv. þingmönnum líður eins og mér, ég er viss um að þeim líður eins og mér þegar þeir horfa yfir hraunflákana, jökulbreiðurnar, mosann og lyngið sem breiðir úr sér án þess að nokkur maður hafi deiliskipulagt nokkuð af því þetta er ósnortið. Þá hljóta allir að átta sig á því þvílíka auðlind við eigum. Það er það sem 60% landsmanna að minnsta kosti hafa áttað sig á, að þetta er auðlind. Þetta er auðlind sem skiptir máli að vernda sjálfrar sín vegna. Þessi náttúra er þarna óháð okkur og það skiptir máli að vernda hana sjálfrar sín vegna, en hún er líka auðlind því það skiptir máli að þeir sem hingað koma til að fara upp á hálendi sækjast eftir nákvæmlega þessu. Þeir eru ekki að sækjast eftir því að keyra þar um, stoppa í sjoppunni, fá sér pylsu, kíkja á hitt og þetta og aðeins upp á jökulinn, þeir eru að sækjast eftir því sem við getum kallað öræfakyrrðinni sem kölluð hefur verið svo í bókmenntum okkar, ljóðum og skáldskap, það er öræfakyrrðin og víðernin sem eru sannkölluð auðæfi í nútímanum þar sem áreitið er með slíku móti að maður getur nánast aldrei upplifað öræfakyrrðina.

Það verður að viðurkennast, herra forseti, að háspennulínur, mannvirki, vegalagning — allt hefur þetta áhrif á upplifunina. Ég held því að ástæða þess að við ræðum þessa tillögu svo lengi og vel er að hún hefur í för með sér stefnumörkun gagnvart miðhálendinu sem getur orðið til þess að við getum ekki snúið við aftur, herra forseti, óafturkræf áhrif. Þótt menn segi hér: Ja, það er ekki búið að ákveða að virkja þótt við setjum þetta í nýtingarflokk, þá er það að færa þetta yfir í nýtingarflokk miklu afdrifaríkari ákvörðun en að færa úr nýtingu yfir í bið. Ef við færum úr nýtingu yfir í bið þá erum við að segja að við ætlum að bíða eftir því að fagaðilar hafi frekari tíma til að afla gagna.

Af því að ég á stuttan tíma eftir en ætlaði þó aðeins að nefna virkjanir í Þjórsá þá er það svo að í greinargerð hæstv. ráðherra með upprunalegri tillögu eru færð verulega haldbær rök fyrir því af hverju það er ekki góð hugmynd að færa Urriðafossvirkjun og Holtavirkjun yfir í nýtingarflokk á þessum tíma. Það er vegna villta laxastofnsins.

Ég ætla að nýta síðustu mínútu mína til að minna okkur á að miðhálendið er ekki bara verðmæti. Við skulum átta okkur á því að þarna er búsvæði stærsta villta laxastofns á norðurslóðum ef við getum orðað það svo, á norðurhveli, í því felst gríðarleg auðlind og við viljum ekki taka skref sem geta orðið til þess að raska tilvist þessa fisks. Það eru færð rök fyrir því til að mynda af þeim fræðimönnum sem hafa verið að vinna fyrir North Atlantic Salmon Fund að það þurfi að kanna miklu betur áhrif mótvægisaðgerða á borð við seiðaveitur og annað áður en við getum tekið þessa ákvörðun.

Ég mundi segja að í þessu máli, herra forseti, væri það svo einfalt fyrir meiri hlutann að bíða þetta ár þangað til verkefnisstjórn skilar af sér í staðinn fyrir að efna til ófriðar um málið með þeirri breytingartillögu sem hér liggur fyrir, því það er svo margt undir, herra forseti. (Forseti hringir.) Það er framtíðarstefna í atvinnuuppbyggingu og (Forseti hringir.) umhverfisvernd sem er hér undir. Það er það sem ég vil (Forseti hringir.) að við hugleiðum þegar við eigum samtal um þessi mál.