144. löggjafarþing — 107. fundur,  15. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[18:13]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F) (um fundarstjórn):

Hæstv. forseti. Við erum hér að ræða undir liðnum um fundarstjórn tillögu til þingsályktunar um breytingu á þingsáætlun um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða. Virðulegur forseti hefur úrskurðað að málið sé tækt til að vera tekið hér á dagskrá. Hv. stjórnarandstaða er ósátt við það og kemur ítrekað upp undir liðnum um fundarstjórn.

Það sem mér finnst ómaklegt er að halda því fram hér að hæstv. umhverfisráðherra forðist umræðuna. Þvert á móti hefur hún komið hingað og tekið þátt í umræðunni. Hún kom til að mynda í fyrrakvöld og var látin bíða í þrjá klukkutíma til að komast að og geta átt samræðu við hv. stjórnarandstöðu. (Gripið fram í.) Að vera að kalla eftir henni hingað (SSv: Hún á að vera hér.) og tala um að (Gripið fram í.) hún hafi ekki (Forseti hringir.) tekið þátt í þessari umræðu finnst mér ómaklegt. (SSv: Ómaklegt?) (Gripið fram í: Við hleyptum henni hérna fram fyrir …)