144. löggjafarþing — 107. fundur,  15. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[18:19]
Horfa

Björt Ólafsdóttir (Bf):

Virðulegi forseti. Við erum komin í síðari umræðu, seinustu umræðu um þingsályktunartillögu umhverfisráðherra sem fjallaði um að færa eina virkjun, Hvammsvirkjun í neðri hluta Þjórsár í nýtingarflokk, úr biðflokki í nýtingarflokk. Það var efni þingsályktunartillögunnar og það er það sem við ættum að vera að ræða, er það ekki? En einhverra hluta vegna erum við í þessari lokaumræðu að tala um eitthvað allt annað. Við erum að ræða um að færa auk Hvammsvirkjunar hvorki meira né minna en fjóra aðra virkjunarkosti úr bið í nýtingu, bara sisvona. Ég vil í byrjun þessarar umræðu taka undir það sem kom fram í máli hv. þm. Steinunnar Þóru Árnadóttur að það er auðvitað ótækt að við séum í fyrsta lagi allt í einu farin að ræða eitthvað annað en þingsályktunartillöguna og í öðru lagi breytingartillögu frá meiri hluta atvinnuveganefndar sem kveður á um fjóra aðra kosti. Nú held ég að við séum farin að ræða enn aðra breytingartillögu, en hún er að vísu ekki komin fram, en hér hafa verið gefnar meldingar um að taka Hagavatn út, og það er þá þriðja tillagan.

Það þarf auðvitað að vera á hreinu hvað við ræðum — er það ekki? — vegna þess að eftir þessa umræðu göngum við til atkvæða og það getur ekki verið í lausu lofti um hvað við ættum að vera að ræða. En síðast, og að minnsta kosti þegar þessir punktar hér voru skrifaðir niður sem ég er að fara að styðja mig við, var planið frá hv. þm. Jóni Gunnarssyni að henda inn svona í leiðinni Urriðafossvirkjun og Holtavirkjun, Hagavatnsvirkjun og Skrokkölduvirkjun.

Það hefur komið fram að það er mat lögfræðinga ráðuneytis umhverfis- og auðlindamála að enn vanti upp á gögn og ekki sé hægt, a.m.k. enn um sinn og ef fólk vill fara eftir lögum, að meta hvorki Hagavatn né Skrokköldu, hvort þessar virkjanir geti færst úr biðflokki í annaðhvort vernd eða virkjun. Þetta liggur fyrir og er álit umhverfis- og auðlindaráðuneytisins. Og þetta var líka niðurstaða fyrrverandi umhverfisráðherra því að hann lagði jú til bara Hvammsvirkjun en ekki neitt annað til þingsins.

Meiri hluti atvinnuveganefndar ákveður að túlka hlutina og veruleikann einhvern veginn allt öðruvísi sem og, eins og komið hefur fram, núverandi hæstv. umhverfisráðherra. Ég verð eiginlega að fá að leggja það til að þessir aðilar, hæstv. umhverfisráðherra Sigrún Magnúsdóttir og þeir þingmenn sem leggja fram breytingartillöguna — ég veit að þetta er flókið fyrir fólk sem situr heima og hlustar á þetta og er að reyna að fylgjast með, mér finnst þetta ekki einu sinni liggja ljóst fyrir, þetta er ekki mjög gagnsæ umræða — ég legg til að núverandi umhverfisráðherra ræði við fyrrverandi umhverfisráðherra og samflokksmann sinn, Sigurð Inga Jóhannsson, sem og meiri hluta atvinnuveganefndar, þar eru samflokksmenn líka, og þetta fólk gæti kannski komist á sömu blaðsíðuna. Ég gæti trúað því að Sigurður Ingi Jóhannsson, hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, gæti deilt visku sinni eða deilt þeim niðurstöðum sem hann komst niður á í sinni ráðherratíð ásamt starfsmönnum og lögfræðingum í ráðuneytinu um ástæður þess að einungis Hvammsvirkjun var færð inn í upprunalegu þingsályktunartillöguna sem lögð var fyrir þingið.

Það er nefnilega svoleiðis og ég trúi því að niðurstaða hæstv. fyrrverandi umhverfisráðherra Sigurðar Inga Jóhannssonar sé til komin vegna þess að hann áttaði sig á því að lög nr. 48/2011, um verndar- og orkunýtingaráætlun, rammaáætlun, kveða á um umsagnarferli, þau gera það nefnilega. Og í því umsagnarferli sem fór fram um Skrokköldu komu fram athugasemdir sem var tekið tillit til. Þess vegna var Skrokkalda sett í bið en ekki í verndarflokk, herra forseti, hún var sett í bið, sú virkjun, vegna þess að athugasemdir komu fram um að virkjunin væri það nálægt, alveg í anddyri Vatnajökulsþjóðgarðs. Það komu fram lögmætar athugasemdir sem ekki höfðu komið fram áður og þá verður ráðherra samkvæmt lögunum að taka tillit til þess. Það var gert í tíð fyrri ríkisstjórnar. Ég held að það sé mikilvægt að fara í gegnum þetta svona svo að við séum á sömu blaðsíðu, því ég held að það séu ekki bara menn í þessum sal heldur væntanlega líka þeir sem heima sitja sem eru orðnir nokkuð ringlaðir yfir því hvernig fólk túlkar rammaáætlun og gjörðir fyrri ríkisstjórnar og þeirrar sem nú situr á mismunandi hátt. Ég held að það sé lag að leysa aðeins úr þessum ruglingi.

Hagavatnsvirkjun, svo að við tökum hana næst fyrir, hefur ekki gengist undir það lögformlega ferli sem lög um rammaáætlun kveða á um, það er mjög skýrt og kannski enn skýrara en með Skrokköldu, en eins og ég rakti um málefni Skrokköldu er það þó líka skýrt. En þetta virðist ekki skipta formann atvinnuveganefndar og fylgisveina hans miklu máli. Formaðurinn hefur bara sagt: Skítt með þetta, skítt með þetta faglega ferli sem verkefnisstjórn og sérfræðingar í undirhópum hennar eiga að vinna að. Við strákarnir ætlum bara að græja þetta sjálfir, því að það þarf að virkja svo mikið. Þetta hefur svolítið verið tónninn, herra forseti. Nú ætlum við bara að ganga í málið.

Virðulegi forseti. Ég hef setið alla þessa fundi með meiri hluta atvinnuveganefndar. Ég hef setið þá fundi þar sem atvinnuveganefnd eða meiri hlutinn hefur sett sig í þær stellingar að segja: Heyrðu, við tökum verkefnið að okkur, þrátt fyrir að löglega höfum við ekkert tilkall til þess. Það eru lög sem kveða á um annað. Það er verkefnisstjórn um rammaáætlun sem á að gera þetta.

Með fullri virðingu, herra forseti, fyrir okkur öllum sem sitjum í þessari nefnd, mér finnst þetta vera ágætt fólk, við erum öll ágæt að einhverju leyti, en við sitjum ekki í atvinnuveganefnd sem þessir sérfræðingar, við gerum það einfaldlega ekki og ég held að við ættum að vera auðmjúk gagnvart því. Við erum þarna sem þingmenn en ekki sem jarðfræðingar eða aðrir tilteknir sérfræðingar sem veljast inn í atvinnuveganefnd og geta metið umhverfisáhrif, efnahagsáhrif og annað slíkt út frá þeim „parametrum“ sem skilgreindir eru í þessum lögum.

Aðeins áfram um Hagavatn, það er svolítið skýrt hvernig þetta á sér stað eða hvernig vinnan á sér einmitt ekki stað, þegar við í atvinnuveganefnd ræðum um Hagavatnsvirkjun sem hefur ekki farið í gegnum einu sinni rammaáætlun 2 og þar vantar mikið upp á rannsóknir og gögn. Þá sitjum við ekki bara á nefndasviði Alþingis og segjum: Jú, við skulum fara í gegnum þessar jarðfræðistúdíur eða hvað það er. Gott væri ef við hefðum að minnsta kosti reynt það, en það var ekki svo.

Ég ætla að tæpa á því hvað um er að ræða. Fólk bindur vonir við að það megi minnka sandfok með því að færa upp í upprunalegan árfarveg lónsins, og það væri óskandi að það væri hægt. Ég vil taka það fram að ég er úr þessari sveit, ég er úr uppsveitum Árnessýslu. Ég er úr Biskupstungum og Hagavatn er þarna rétt fyrir ofan og ég veit alveg að stjórnmálamenn hafa talað fyrir því lengi að virkja Hagavatn, og stjórnmálamenn eins og ég ættu væntanlega að hafa hag af því að reyna að lokka til sín kjósendur með því að segja: Ég ætla að virkja fyrir ykkur Hagavatn. En ég get ekki farið fram þannig við mína sveitunga án þess að geta lofað þeim því að farið hafi fram nægjanlegar rannsóknir á Hagavatni þannig að við séum örugg um að sandfok minnki, að miðlunarlónið eða þessi týpa af virkjun hafi í raun jákvæð áhrif. Ég ætla ekki að lofa upp í ermina á mér með það af því að ekki hefur verið sýnt fram á það. En ég vil gjarnan að fleiri rannsóknir fari fram eða í rauninni einhverjar til þess að við getum svarað þessum spurningum fyrir uppsveitarmenn í Biskupstungum og fyrir alla þjóðina. En við erum ekki einu sinni komin á þann stað.

Landgræðslan hefur sagt um Hagavatn að stöðugt lón sé gott fyrir svæðið en ekki miðlunarlón. Fulltrúar hennar hafa sagt: Rennsli úr jöklinum er ekki nægjanlegt fyrir virkjun. Við þurfum að athuga að í þessari nýju tillögu sem liggur fyrir um Hagavatn er gert ráð fyrir 5 metra yfirborðssveiflu, sem þýðir að á ákveðnum árstíma lækkar vatnið í Hagavatni um 5 metra og aurinn sem kemur úr jöklinum situr eftir, og hvert fer hann? Jú, það eru uppi getgátur um það og alla vega segir Landgræðslan að það sé ekkert tryggt í því og það sé raunar áhyggjuefni að þessi aur geti fokið yfir allar sveitir þar fyrir neðan. Ég vil að við tökum mark á þessu, ég bið ekki um annað. Það er óábyrgt að lofa fólki einhverju sem við vitum ekki nógu mikið um.

Virðulegi forseti. Ég vil fara aðeins yfir álit umhverfisráðherra, Sigrúnar Magnúsdóttur, um að halda sig við breytingartillögu meiri hluta atvinnuveganefndar en taka út Hagavatnsvirkjun, ef ég skil hana rétt, það er eitthvað sem hefur bara komið fram munnlega hér í dag og liggur ekki formlega fyrir. Það væri gott að hafa hæstv. ráðherra í salnum af því að ég tel þessa málstofu vera mjög mikilvæga, hér erum við að reyna að finna út úr mikilvægum málum og það gerum við með því að tala saman og það hefur gengið mjög vel. Það er vont að hafa hana ekki til þess að fara í gegnum þetta saman, því að um leið og Hagavatnsvirkjun er tekin út á grundvelli þess að hún hafi ekki farið í gegnum faglegt mat verkefnisstjórnar um rammaáætlun, eins og ég skildi það á ráðherranum, hvað þá með Skrokköldu?

Ég fór í gegnum það áðan að Skrokkalda var sett í bið en það er ekki byggt á neinu faglegu ferli sem sá kostur er tekinn aftur, af því að það fór í umsagnarferli, það komu upp áhyggjur af nálægð við Vatnajökulsþjóðgarð. Við erum ekki búin að hrekja þær athugasemdir, verkefnisstjórn er ekki búin að gera það. Á ekkert að taka tillit til þess, skiptir það engu máli? Þessi kostur er enn þá í bið sem sagt og það hlýtur að þurfa að fara fram eitthvert mat áður en þetta er sett í virkjun.

Hæstv. umhverfisráðherra talaði líka gegn því, ef ég skildi hana rétt, að verkefnisstjórn rammaáætlunar lyki vinnu um virkjanir í neðri hluta Þjórsár, sem sagt Urriðafossvirkjun og Holtavirkjun, með því að samþykkja breytingartillöguna mínus Hagavatn, þá er hún sjálfkrafa að segja: Nei, það þarf ekkert að skoða meira þessa virkjunarkosti í neðri Þjórsá. Þá er hún að tala gegn eigin orðum, sem komu fram í fréttum sjónvarps að kvöldi 22. janúar síðastliðins. Þar kom fram hjá Sigrúnu Magnúsdóttir, hæstv. ráðherra, að hin eðlilega málsmeðferð væri að verkefnisstjórn mundi sjá um rammaáætlun, það væri hin eðlilega málsmeðferð. En nú á allt í einu ekki að halda sig við það. Það væri eðlilegt að þessi verkefnisstjórn fengi, svo ég vitni til orða ráðherrans, virkjunarkostina til umfjöllunar og mikilvægt væri að hafa marga kosti undir því að þá væri betra að flokka þá í nýtingarflokk, biðflokk eða verndarflokk.

Virðulegi forseti. Ég tel að það sé brýnt fyrir umræðuna ef við ætlum henni eitthvert hlutverk að fara stuttlega yfir markmið laga um verndar- og orkunýtingaráætlun, markmið þeirra laga sem við erum að fjalla um, nr. 48/2011, því að þau markmið eru mjög skýr. Það á að tryggja að nýting landsvæða þar sem er að finna virkjunarkosti byggist á langtímasjónarmiðum og heildstæðu hagsmunamati þar sem tekið er tillit til verndargildis náttúru og menningarsögulegra minja, hagkvæmni og arðsemi ólíkra nýtingarkosta.

Mér finnst svolítið greinilegt eða mér finnst það vera að teiknast upp að því ágæta fólki sem við stjórnvölinn situr núna, líki bara alls ekkert þetta fyrirkomulag, af því að það gerir ekki ráð fyrir svona handstýringu, ef svo má segja. Þetta hefur margoft komið fram hér í pontu. Formaður atvinnuveganefndar segir að hann verði bara að taka af skarið, lætur að því liggja að fagleg vinna verkefnisstjórnar sé ómöguleg og hann og aðrir í meiri hluta atvinnuveganefndar séu til þess bærir og betri í að taka vinnuna yfir. Það getur vel að verið að þeim hv. þingmönnum þyki þeir hafa umboð til þess, en þeir verða þá að gera það í skjóli laga um rammaáætlun, af því að lög um rammaáætlun gera ekki ráð fyrir þessu. Ef ekki, þá verður bara að segja það eins og er: Ég ætla bara að ráða þessu. Allt í lagi, tölum þá um það. Það væri miklu heiðarlegra. Það eru vafalaust einhverjir sem væru bara ánægðir með það, einhverjir sem vilja fleiri virkjanir, meira af stóriðju, finnst ekkert að línum yfir miðhálendið En það er líka stór partur af þjóðinni sem vill þetta alls ekki. Ég vil þetta alls ekki og ég er hér á þingi til þess að verja þá hagsmuni og ég mun gera það. En báðir þessir hópar, virkjunarsinnar og þeir sem vilja feta sig eftir þessu faglega ferli, eiga það skilið að talað sé við þá eins og fólk, ekki svona froðukennt, að við segjum: Heyrðu, meiri hluti atvinnuveganefndar segir bara: Við viljum handstýra þessu, við viljum virkja og ekkert kjaftæði. Það er bara miklu heiðarlegra.

Niðurstaða rammaáætlunar er að einhverju leyti málamiðlunartillaga. Þar er tekin ákvörðun um virkjun eða vernd á grundvelli gagna og fagálita. Það er einhver misskilningur í gangi, finnst mér, um að niðurstaðan sé bara fyrir náttúruverndarsinna. Þeir hafa margsinnis látið í minni pokann hvað varðar rammaáætlun, en þetta er málamiðlun. Við höfum rætt um Eldvörp og ég bendi á með Hvammsvirkjun að það er fólk sem býr á bökkum Þjórsár og í Þjórsárdalnum sem vill ekki sjá þá virkjun. Það mun væntanlega láta í minni pokann ef þetta fer í gegn. Mér finnst umræðan vera þannig að fólk ætli að virða ferlið öðrum megin, það eru náttúruverndarsinnar og þeir sem vilja fara eftir lögum um rammaáætlun, en hinir ætla bara að draga línuna lengra. Það er náttúrlega ekki „fair game“, það eru ekki sanngjarnar leikreglur.

Ég vil upplýsa það hér að ég tel að það þurfi að virkja meira á Íslandi í framtíðinni, en ég vil ekki virkja bara til að virkja. Ég vil gæta jafnvægis við náttúru og nýtingu og ég vil ekki virkja fyrir ódýrt verð. Ég vil í fyrsta lagi nýta virkjanirnar betur og ég vil athuga með stækkanir á þeim sem fyrir eru. (Forseti hringir.) Og ég vil ekki virkja og kippa í leiðinni fótunum undan undirstöðuatvinnuvegi íslensku þjóðarinnar, sem er ferðaþjónustan. Hvernig er hægt að segjast vilja fá hjól atvinnulífsins í gang en ætla svo í leiðinni að kippa undan bílnum öxlinum?