144. löggjafarþing — 107. fundur,  15. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[18:41]
Horfa

Björt Ólafsdóttir (Bf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þarna hittir hv. þingmaður naglann algjörlega á höfuðið. Við ættum í rauninni ekki að vera að ræða hvort einhver vill virkja í neðri hluta Þjórsár eða hvað. Hér stendur styrinn um og það hefur verið ákall minni hlutans að við förum eftir þeim lögum í landinu sem okkur hafa verið sett. Ég tel það vera skyldu mína sem þingmanns, heilaga skyldu, að gera það. En með þessari málsmeðferð, sem er mjög óljós og sveiflukennd og tók síðast í morgun smásnúning, er ekki ljóst hvað er að gerast. Ég verð að segja það að mér finnst svona flumbrugangur í vinnubrögðum ekki til þess fallinn að auka virðingu Alþingis. Þetta er ógegnsæi og þetta lyktar af sérhagsmunum. Maður spyr sig hvað liggi á.