144. löggjafarþing — 107. fundur,  15. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[18:44]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni ágæta ræðu. Það er enn svolítið óljóst hver afstaða hv. þingmanns er til þessara tilteknu virkjana, þ.e. Hvammsvirkjunar sérstaklega, þar sem hún hefur farið í gegnum ferli, en einnig hinna virkjananna; Holtavirkjun er til dæmis upp á 53 megavött, Urriðafoss upp á 130 megavött ef ég skil rétt. Ég er honum sammála um að ferlið sé algjörlega úti á túni. En ég velti fyrir mér: Ef til ákvarðanatöku kæmi, sem yrði alfarið byggð á annarri umferð rammaáætlunar, hver yrði afstaða hv. þingmanns til þeirra virkjana sem lagðar eru til í þessu breytingartillögubrölti?