144. löggjafarþing — 107. fundur,  15. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[19:09]
Horfa

Katrín Jakobsdóttir (Vg) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Ég hef nú komið hingað upp og hrósað þessum umræðum því að ég lít á það sem okkar hlutverk sem hér erum að eiga í rökræðum. Og þó að hér séu svo sem ekki margir til svara, þótt einhverjir hafi auðvitað komið hingað upp og svarað af hálfu hv. þingmanna meiri hlutans, þá finnst mér rökræðan samt vera að færa okkur nær sannleikanum og margt sem hefur komið í ljós í dag í þessari umræðu sem varpar ljósi á málin. Til að mynda eru menn að vitna í nokkurra ára gömul plögg máli sínu til stuðnings í stað þess að vitna í raunverulegar umsagnir um málið og annað slíkt, en gallinn er að ég hef ekki þá tilfinningu að á rök okkar sé hlustað. Þetta er dálítið eins og þegar maður sem ég þekki notar alltaf „mute“-takkann á sjónvarpinu þegar þeir sem hann telur sig ekki vera sammála taka til máls af því að hann ætlar ekki að hlusta á þá. Svo segir hann gjarnan um sinn karl eða kerlingu: Hann eða hún var best, að vísu heyrði ég ekkert sem hinir sögðu.

Ég velti fyrir mér hvort hv. þingmenn meiri hlutans séu dálítið að nýta „mute“-takkann svona, bæði í tæknilegum skilningi og andlegum.