144. löggjafarþing — 107. fundur, 15. maí 2015.
áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
244. mál
Hæstv. forseti. Ég ætla ekki að hafa langt andsvar hér við hv. þingmann. Ég er honum hjartanlega sammála um að það er hægt að skipta kökunni á Íslandi á annan veg, á réttlátari hátt, hvort sem kemur að orkunni og orkunýtingu eða í okkar kjaramálum. Ef menn skildu það þá yrðu þessir kjarasamningar og þessar deilur leystar á morgun.