áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegi forseti. Það er alltaf gaman að heyra ræður hv. 8. þm. Suðvest., þær eru mjög efnismiklar og góðar. Hv. þingmaður fór inn á þann meginlýðræðisvinkil sem ég hef alltaf mestan áhuga á þegar kemur að svona hörðum deiluefnum sem þingið virðist ekki vera í stakk búið til að eiga við með góðu móti.
Ég verð að segja að persónulega vil ég forðast það að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu vegna hverrar einustu virkjunar, vegna þess að ég held að það sé engin eftirspurn eftir því í sjálfu sér. Ég held að það sé miklu frekar eftirspurn eftir því að það sé einhver ferill eins og var fyrirhugað með rammaáætlun, sem var auðvitað stórglæsileg löggjöf og glæsilegt pólitískt markmið í svona stóru deiluefni.
Ástæðan fyrir því að ég er að velta þessu fyrir mér er vegna þess að ef þingið er ekki hæft til að takast á við slík deilumál þurfa þau, að mínu mati, að enda hjá þjóðinni og undantekningarlaust ef þjóðin krefst þess sjálf, mér finnst það vera grundvallaratriði. En gefum okkur fyrir fram að við viljum helst gera þetta á grunni sem allir geta verið sammála um, ekki endilega alltaf í sátt, eins og hv. þingmaður fer réttilega inn á erum við ekki endilega sammála um hvað nákvæmlega eigi að virkja eða virkja yfir höfuð, ef út í það er farið, en við hljótum að vilja hafa grunn sem við getum öll unnið eftir.
Það sem ég er að velta fyrir mér er hvernig við getum, ef þessi breytingartillaga frá hv. atvinnuveganefnd fer í gegn og er samþykkt, horft fram á veginn og hvað getum við gert næst til að reyna að ná aftur einhvers konar sátt um grunnaðferðina sem við ætlum að beita? Ég spyr hv. þingmann helst vegna þess að hann var í fyrri ríkisstjórn og getur kannski gefið okkur góða sýn á það hvar þetta ferli klikkar með hliðsjón af því hverjar væntingarnar voru þegar lögin voru sett 2011, (Forseti hringir.) hvað brást og hvernig við gætum breytt því þannig að það tæki undir áhyggjur allra.