144. löggjafarþing — 108. fundur, 19. maí 2015.
starfsáætlun og væntanleg stjórnarfrumvörp.
Forseti. Svo ég endurtaki enn og aftur kröfu minni hlutans um dagskrá þingsins. Ég legg til að forseti taki þetta mál af dagskrá þannig að við getum afgreitt hin málin 40 sem hv. þm. Unnur Brá Konráðsdóttir benti á. Ég vil þá benda á að ekkert af þeim málum sem bíða eru stóru mál ríkisstjórnarinnar af því að þau eru ekki komin hér inn á Alþingi þannig að það að reyna að láta líta út eins og við séum að tefja fyrir einhverjum mikilvægum málum er hrein og klár lygi, forseti. Það er ljótt að ljúga.