frumvörp um húsnæðismál.
Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin. En mér heyrist að eingöngu sé verið að fjalla um útfærsluatriði en það sé ekki verið að krefjast breytingar á grunnstefnunni. Ég verð að spyrja mig að því hvað hæstv. ráðherra hafi verið að gera síðastliðið ár. Af hverju var ekki búið að leggja þessi mál fram? Af hverju eru þau komin inn í þennan farveg þegar það lá fyrir að það var ekki óskað eftir aðkomu ríkisvaldsins við gerð kjarasamninga? Þessi frumvörp fram komin og samþykkt hefðu getað haft áhrif til þess að milda ástandið og óánægju launafólks. En myndin er að skýrast. Ég held að Sjálfstæðisflokkurinn styðji ekki þessa stefnu. Og ég spyr að því hvort Framsóknarflokkurinn yfir höfuð styðji þessa stefnu. Ráðherra hefur lýst því yfir að hún hyggist sjálf leggja fram frumvörpin ef hún fái ekki stuðning ríkisstjórnarinnar. Ég segi við hæstv. ráðherra: Leggðu þau fram núna. Hvað tefur?