viðvera forsætisráðherra í umræðu um rammaáætlun.
Forseti. Það kom fram hér í fyrirspurnatíma með hæstv. forsætisráðherra að það er nákvæmlega engin verkstjórn hjá þessari ríkisstjórn. Mér finnst það mjög alvarlegt, við erum samkvæmt starfsáætlun á lokaspretti þessa þings og hæstv. forsætisráðherra gat ekki upplýst um það hvaða mál væru í forgangi hjá ríkisstjórninni. Það hefur enginn samráðsfundur verið boðaður um hvað eigi að setja í forgang og því er ljóst að ríkisstjórnin hefur í raun og veru enga stefnu. Og það er kannski út af því að það er mikið ósætti innan stjórnarflokkanna hvað svo sem hver segir. Maður er ansi ágætur í því að lesa í andrúmsloft og það fer ekkert fram hjá neinum sem hefur nef fyrir slíku.
Ég óska eftir því, hv. forseti, að þessum fundi verði frestað og það verði samstundis boðað til fundar þingflokksformanna þar sem rædd verður sú krafa hæstv. forsætisráðherra (Forseti hringir.) að hér verði sumarþing án samráðs við þingið.