144. löggjafarþing — 108. fundur,  19. maí 2015.

viðvera forsætisráðherra í umræðu um rammaáætlun.

[15:41]
Horfa

Forseti (Kristján L. Möller):

Forseti hefur áður getið þess að boð hafa verið send til viðkomandi ráðherra sem óskað var eftir að yrðu viðstaddir þegar umræða um þriðja dagskrármálið hefst. Forseta er kunnugt um að hæstv. umhverfis- og auðlindaráðherra er hér. Hins vegar hefur forseta borist til eyrna að hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Sigurður Ingi Jóhannsson sem líka var nefndur sé með fjarvist í dag. Hæstv. fjármálaráðherra er ekki í húsi.