áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða ræðu. Mig langar aðeins að koma inn á laxastofninn í Þjórsá og þær varúðarráðstafanir sem menn vilja gera í þeim efnum til að koma í veg fyrir að virkjanir í neðri hluta Þjórsár valdi því að laxastofninn og silungastofninn, urriðinn, verði í hættu. Við vitum að þarna er um einn stærsta laxastofn landsins að ræða. Það var einmitt það sem hv. þingmaður nefndi að menn tóku tillit til umsagna og settu þess vegna þessa kosti í bið, til að fá fram frekari rannsóknir.
Nú kemur það fram í mörgum umsögnum að þær rannsóknir liggi ekki enn fyrir, gagnsemi þessara seiðafleyta, og hjá Veiðimálastofnun kemur fram að ef mótvægisaðgerðirnar virki ekki, seiðafleyturnar, sem ekki er komin nein reynsla á á Íslandi, geti laxastofninn verið í mikilli hættu og að 88% af honum gætu verið í hættu í Urriðafossi og 52% í Holtavirkjun.
Telur hv. þingmaður ásættanlegt að fara svona fram án þess að þær rannsóknir liggi fyrir og taka þessa miklu áhættu gagnvart laxastofninum í Þjórsá? Það hafa líka komið aðvörunarorð frá Verndarsjóði villtra laxastofna, Orra Vigfússyni, sem hefur verið þar í forsvari, og hann hefur lengi kallað eftir því að það skorti mikilvægar grunnupplýsingar hjá Landsvirkjun. Telur hv. þingmaður ekki að það að hún á studdi sínum tíma að þetta yrði sett í (Forseti hringir.) bið sé ekki enn þá í góðu gildi?