144. löggjafarþing — 108. fundur,  19. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[16:58]
Horfa

Guðmundur Steingrímsson (Bf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þessi munur er mjög mikilvægur. Það að taka eitthvað úr nýtingu og setja í bið er ekki óafturkræft og leiðir ekki til neins sem er óafturkræft. Það skapar bara betri grundvöll fyrir ákvarðanatöku, meiri upplýsingar, meiri rannsóknir. Ég skildi aldrei á síðasta kjörtímabili hvernig fólk gat brjálast yfir þessu, talað um einhver svik í þessu, sérstaklega eftir að 220 umsagnir bárust með fjölmörgum röksemdum fyrir því að þessi leið yrði farin. Að setja eitthvað í nýtingarflokk og nýta það síðan er óafturkræft. Það er grundvallarmunur á þessu.

Er það lögleg leið sem meiri hluti atvinnuveganefndar ætlar að fara hér? Nei, ég held ekki. Ég held að þetta sé ólöglegt og ég held að þetta verði kært ef það verður niðurstaðan. Og ég hef farið í gegnum það í huganum sjálfur hvort þingmenn í minni hlutanum ættu kannski að hafa frumkvæðið að því, ef þetta fer í gegn, að kæra þessa niðurstöðu, að slá saman í eina málssókn.