144. löggjafarþing — 108. fundur,  19. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[17:05]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta atvinnuvn. (Lilja Rafney Magnúsdóttir) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Framtíðarsýn hæstv. forsætisráðherra er ekki björt gagnvart uppbyggingu atvinnulífs fyrir nýja kynslóð. Það er auðvitað mjög sérstakt ef núlifandi kynslóðir eiga að vera búnar að ákveða hvernig við ætlum að haga atvinnulífi og fjölbreytni í framtíðinni með því að reyna að fara nú út í miklar virkjanir til þess, finnst manni, að koma orku í stóriðju.

Hæstv. forsætisráðherra var inntur eftir því hvað lægi svona á, hvað kallaði akkúrat á orku núna. Nú eru um 900 megavött í nýtingarflokki. Búðarháls er nýkominn inn í kerfið, þ.e. orkan sem er framleidd þar. Hvað telur hv. þingmaður að sé nákvæmlega á bráðadeild núna ef það fær ekki næga orku, helst í gær?