áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Frú forseti. Ég tek undir með hv. þm. Lilju Rafneyju Magnúsdóttur um þetta ferli. Ég hvet hv. þingmenn stjórnarliða til að kveðja sér hljóðs til andsvara sem allra fyrst eftir að ræður hv. þingmanna byrja, en bíða ekki eftir því að þeim sé nánast lokið til að koma sér hjá því að fara í andsvör.
Ég fór áðan með orð hv. þingmanns og formanns fjárlaganefndar, Vigdísar Hauksdóttur, úr andsvörum við hv. þm. Ragnheiði Ríkharðsdóttur á síðasta þingi. Þar þakkaði hún andsvarið og sagðist geta tekið undir sjónarmið sem komu fram í ræðunni og andsvari varðandi Urriðafossvirkjun, að sjálfsagt mál væri að hlífa henni að sinni meðan frekari rannsóknir færu fram.
Það verður áhugavert ef hún tekur sæti hv. þm. Páls Vals Björnssonar í ræðu á eftir, þá er tiltölulega stutt í að við heyrum hvað það er sem hefur breyst í ferlinu sem hún telur styðja það að Urriðafoss sé núna tækur til að fara í nýtingarflokk.
Að öðru leyti tek ég undir það sem hefur verið sagt um nærveru forsætisráðherra, að hann láti sjá sig hér.