áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Ég spurði hæstv. forseta einfaldrar spurningar áðan um það hvort hæstv. umhverfisráðherra og forsætisráðherra yrðu hér við þessa umræðu. Mér þætti vænt um að fá svar við því sem allra fyrst, að minnsta kosti að boð verði gert eftir þeim af því að ég tel að þau verði að vera hérna. Það segi ég ekki síst þar sem búið er að segja að um sé að ræða lykilmál ríkisstjórnarinnar til að leysa deilur á vinnumarkaði. Það kannast enginn við að hafa kallað eftir því af þessari ríkisstjórn að þetta yrði gert til að leysa kjaradeilur.
Ég held líka að hv. þm. Jón Gunnarsson ætti að sitja undir þessari umræðu og hlusta á það sem verið er að segja og taka þátt í henni. Það þýðir ekki að leggja fram svona tillögur og detta hér inn eftir vild og eftir því hvað hentar hverju sinni. Þar að auki held ég að hann hefði gott af því að heyra upplýsingar sem hér koma fram vegna þess að ýmislegt virðist hafa farið fram hjá nefndinni við vinnslu þessa máls og ekki síst lögfræðiálit tveggja ráðuneyta, umhverfis- og auðlinda- og atvinnuvegaráðuneytis.