144. löggjafarþing — 108. fundur,  19. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[17:42]
Horfa

Páll Valur Björnsson (Bf) (um fundarstjórn):

Hæstv. forseti. Ég kem eiginlega bara upp til að taka undir með tveimur síðustu ræðumönnum; tölum saman. Samskiptin eru það stórkostlegasta af öllu í mannlegu lífi og við getum alltaf komist að niðurstöðu. Tölum saman. Þó að við séum gersamlega ósammála um alla hluti þá ættum við að geta komist að niðurstöðu. Þetta er ótrúlegt þrátefli sem við höfum komið okkur í hérna í þinginu og því er ekki að linna. Óhætt er að segja hv. stjórnarþingmönnum það að því fer ekki að linna, því miður, fyrr en þeir gefa eftir og ræði málin og reyni að komast að einhverri niðurstöðu um hvernig leysa eigi þetta mál. Sérstaklega vil ég koma hingað upp og benda á að tala eigi fyrir hönd fólksins sem býr á bökkum Þjórsár. Fyrir mér vega hagsmunir þess meira en sílíkonverksmiðjur á Grundartanga, það er bara þannig. Það vegur bara miklu þyngra í þessu máli.