áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegi forseti. Eins og hv. þingmaður kom inn á var farið í ferli út af breytingartillögum. Mér finnst það sem snýr að þessu máli svo flókið að ég datt næstum því út en kom aftur inn undir lokin. Mér finnst þetta sýna enn og aftur að við erum með risastórt samfélagslegt mál og ég held að það liggi við að aðeins 10% þjóðarinnar viti raunverulega um hvað það snýst. Þetta er mál sem RÚV ætti að gera fréttaskýringarþátt um frá upphafi ferlisins til þessa dags, um hvað málið snýst. Við þingmenn hefðum allir gott af því að horfa á slíkan þátt. En eins og staðan er í dag eru þetta fréttir og ef maður sá ekki frétt nr. 1 sem var fyrir sjö árum er maður kannski dottinn út, vegna þess að fréttirnar byggja alltaf á því að menn þekki og viti um hvað málið snýst. Þetta er mjög flókið, en til að svara spurningunni þá veit ég ekkert hvað ég hefði gert í sporum ráðherra á síðasta kjörtímabili, væntanlega hefði ég stigið mjög varlega til jarðar.