áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Því hefur ítrekað verið haldið fram hér að við í atvinnuveganefnd setjum okkur á hærri hest en faghópar. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hún telji sig vita betur en Orkustofnun og orkumálastjóri sem gefur umsögn um breytingartillöguna. Umsögnin er frá 10. febrúar 2015 og þar segir: Tillagan er í samræmi við faglega niðurstöðu verkefnisstjórnarinnar og upphaflega þingsályktunartillögu. Þar var þremur virkjunarkostum í vatnsafli á Suðurlandi, þ.e. Urriðafossvirkjun, Hvammsvirkjun og Holtavirkjun, öllum í Þjórsá, raðað í orkunýtingarflokk, enda var um að ræða virkjunarkosti sem voru meðal þeirra hagkvæmustu og best rannsökuðu. Þessir kostir voru hins vegar fluttir úr orkunýtingarflokki í biðflokk í meðförum Alþingis árið 2013, án þess að faglegum forsendum sem lágu til grundvallar mati faghópa væri hnekkt. Með því að flytja umrædda virkjunarkosti í Þjórsá úr nýtingarflokki í biðflokk var, að mati Orkustofnunar, markmiðum um sjálfbæra uppbyggingu raforkuframleiðslunnar stefnt í hættu.
Er hv. þingmaður sammála þessari umsögn?