144. löggjafarþing — 108. fundur, 19. maí 2015.
áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
244. mál
Virðulegi forseti. Ég vil taka það fram að ég tel mig ekki vita betur en einn né neinn. Ég hef einmitt viðurkennt það, og kannski verið full hreinskilni í því, að mér finnst þetta mjög flókið mál og ég veit alls ekki betur en atvinnuveganefnd eða einhverjir aðrir. Ég er aðeins að segja að ég treysti því ferli sem við höfum ákveðið og ég vil að því sé fylgt. Og ég átta mig ekki á því, er hv. þingmaður að tala um verkefnisstjórn 2 í spurningu sinni eða er hann tala um verkefnisstjórn 3?