áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegi forseti. Ég er að benda á að við í atvinnuveganefnd hlustum á og tökum tillit til umsagna frá fagaðilum, mjög margra. (Gripið fram í: 2 eða 3?) Þetta er umsögn frá Orkustofnun um þessa breytingartillögu. Þeir segja líka: Ranglega virðist hafa verið gerð krafa við meðferð Alþingis. Svo virðist sem veigamestu rökin fyrir flutningi virkjunarkostsins úr nýtingarflokki í biðflokk hafi verið þau að rannsaka þyrfti betur áhrif virkjananna á laxfiska í Þjórsá. Slík umhverfisskoðun kemur þó fyrst til álita við mat á umhverfisáhrifum framkvæmda, samanber 5. gr. laga nr. 106/2000, um mat á umhverfisáhrifum. Í framhaldi af slíkri skoðun eru skilyrði umhverfismarkmiða sett, bæði við málsmeðferð virkjunarleyfis, samanber 3. mgr. 6. gr. raforkulaga, nr. 65/2003, og framkvæmdaleyfa.
Ég spyr hv. þingmann: Hér eru kassarnir. (Forseti hringir.) Þótt við séum búin að afgreiða þetta svona er eftir sá kassi þar sem eru umhverfisáhrif framkvæmda. Er hv. þingmaður sammála því að þessi athugun á laxfiskum eigi heima þar?