144. löggjafarþing — 108. fundur,  19. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[18:35]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Satt að segja er ég ekki viss hvort þeir mundu gera það þó að þeir þekktu söguna. Ég hef af því miklar áhyggjur að menn geri bara það sem þeim dettur í hug. Mér finnst það kannski sýna sig einna best í því að hér er búið að rekja ferlið afskaplega vel og menn sjá ekki ástæðu til að draga þetta til baka, þeir aðilar sem að þessu standa. Ég held að það sé ekki misskilningur á túlkun laganna, ég held að þetta sé bara ákvörðun hjá sumum alla vega, ég hef trú á því.

Það væri hins vegar öllum til bóta og málinu til bóta að hv. þingmenn, sem voru ekki hér á síðasta kjörtímabili og fylgdust því ekki með því sem þar gerðist, læsu sér betur til. Ég hefði viljað sjá að hv. þingmenn sem flytja þetta mál fengju svolitla yfirferð í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu til að leiða þeim þetta fyrir sjónir, því að þetta stangast á, eins og við þekkjum, við það mat sem þar kemur fram.