áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Frú forseti. Það er erfitt fyrir hv. þm. Jón Gunnarsson að kyngja því að hv. þm. Össur Skarphéðinsson sé að reyna að leiðrétta hann hér með söguskýringum í bók sinni.
Varðandi það sem gerðist á Bakka og ívilnanirnar þar erum við auðvitað búin að koma því máli þannig fyrir, eins og hv. þingmaður veit, að það er farið úr stórum álverksmiðjuhugmyndum í kísilver. Við höfum líka sagt, Vinstri græn, að við erum ekki á móti iðnaði, það er gjarnan látið að því liggja að svo sé. (Gripið fram í.) En við viljum uppbyggingu á landinu, eins og víða annars staðar. Ég vona að hv. þingmaður styðji ívilnanir víða annars staðar, sem eru langt frá svæði, en ekki endilega þær sem eru næst aðkomu til landsins. Hins vegar hefur ekkert slíkt litið dagsins ljós, en hér heldur hv. þingmaður sig við gamaldags framsetningu á málinu. (Gripið fram í: Stóriðjukallaframsetningu.) Já.