144. löggjafarþing — 108. fundur,  19. maí 2015.

um fundarstjórn.

[20:06]
Horfa

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (Sf):

Herra forseti. Ég endurtek þá ósk mína að þetta mál verði tekið af dagskrá en ég ætla að halda áfram þar sem ég hætti um fundarstjórn forseta áðan. Erum við hér af því að það er ekkert að gera í þinginu og ríkisstjórnin vill breiða yfir verkleysi sitt? Þessi ríkisstjórn er mjög verklaus og ég er þakklát fyrir það því að flest sem frá henni kemur er klúður. Hins vegar gætu mál verið til bóta vegna kjarasamninga, þeirra sér ekki stað, eða til þess að fjármagna uppbyggingu á ferðamannastöðum en þau eru ekki hér.

Ég spyr, hæstv. forseti: Eru einhver mál sem væri ástæða til að taka á dagskrá núna sem eru tilbúin til umræðu í þinginu eða erum við hér að (Forseti hringir.) gefa ríkisstjórninni fjarvistarsönnun svo hún þurfi ekki að opinbera getuleysi sitt?