um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir það lengra kvöldverðarhlé sem gert var til þess að greiða fyrir því að hv. allsherjar- og menntamálanefnd gæti fundað og farið yfir mikilvæg málefni sem ástæða gæti verið til að reyna að leiða til lykta fyrir þinglokin. Ég held að það hafi reynst farsælt og geti stuðlað að greiðari framgangi á dagskrá þingsins það sem eftir er.
Í þeim anda beini ég því til hæstv. forseta að með sama hætti verði kallaður saman fundur í atvinnuveganefnd og því máli sem hér hefur verið til inngangsumræðu undanfarna daga einfaldlega vísað til nefndarinnar á nýjan leik. Hér hafa komið fram ýmis stór efnisatriði sem ekki var kunnugt um þegar málið var afgreitt út úr nefndinni og eins virðist vera alvarlegur misskilningur sem gagnlegt væri að nefndarmönnum gæfist (Forseti hringir.) færi á að fara sameiginlega yfir og málið kæmi síðan aftur á síðari stigum hingað inn í salinn til umræðu.