144. löggjafarþing — 108. fundur,  19. maí 2015.

um fundarstjórn.

[20:27]
Horfa

Guðbjartur Hannesson (Sf):

Hæstv. forseti. Ég gleymdi að þakka það hér áðan að við fengum klukkutíma kvöldverðarhlé til að funda í hv. allsherjar- og menntamálanefnd. Þar var verið að leita lausna á málum sem þangað hafa borist og það er einmitt mál sem við afgreiddum fyrir ári; ekkert hefur verið gert til að leysa málið á árinu, við komin aftur í vandræði. Við erum að reyna að bjarga málunum og þið megið trúa því að allir eru tilbúnir til þess. Við erum öll tilbúin til að leita lausna og finna lausnir, þannig að það komi sem best út fyrir alla.

Þannig er það auðvitað í þessum málum líka. Ég hef margoft ítrekað hve langan tíma það tæki ef við værum að fara með þær tillögur sem hér eru í gegnum verkefnisstjórn. Við gætum klárað Hvammsvirkjun í skyndi og síðan tekið hinar fljótlega þar á eftir, í síðasta lagi í byrjun hausts. Ef fundur á að standa hér á allt sumar, eins og sumir segja, þá ljúkum við því þar. En það ofbeldi sem verið er að beita hér kallar á það að við verðum í þessari umræðu endalaust og enginn vilji stendur þá til þess að vinna að skynsamlegri lausn, því miður.