um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Ástæðan fyrir því að hér þarf að ræða dagskrá fundarins, og rétt að upplýsa hv. stjórnarþingmenn Pál Jóhann Pálsson og Brynjar Níelsson um það, er að tillagan eins og hún liggur fyrir er ekki skýr. Við vitum ekki hvers eðlis hún er né hver rökstuðningur fyrir henni er. Það er búið að gera á henni grundvallarbreytingar, það er búið að boða grundvallarbreytingar á henni, að fella út Hagavatnsvirkjun. Við vitum ekki um hinn efnislega rökstuðning fyrir því og á meðan er umræða hér eins og kjánalegur blindingsleikur, því að það liggja engar efnislegar forsendur fyrir umræðunni. Það er grundvallarábyrgð tillöguflytjenda á Alþingi að hafa tillögur í endanlegu formi áður en þær koma til meðferðar á Alþingi.
Venjan hefur verið sú þegar breytingar eru boðaðar á tillögum að þá eru tillögurnar teknar aftur inn til nefndar, gerðar á þeim breytingar og þær koma þannig aftur inn í þingsal með boðlegum, endanlegum rökstuðningi. Það hefur ekki verið gert og það er það sem við erum að kalla eftir, að tillagan sé einfaldlega sett í boðlegan búning og þetta fúsk (Forseti hringir.) í vinnubrögðum sem meiri hluti atvinnuveganefndar hefur ástundað með blessun og vilja hæstv. forsætisráðherra, það verði bundinn endi á þau ósköp.