áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegi forseti. Einu sinni þegar Framsóknarflokkurinn var í kosningabaráttu þá var yfirskriftin Árangur áfram — ekkert stopp. Mér hefur stundum dottið í hug að það standi hjarta framsóknarmanna býsna nærri og þeirra sem eru atvinnulífsdrifkraftstýpurnar í Sjálfstæðisflokknum. Ég ætla ekki að halda því fram hér í andsvari að þeim gangi eitthvað illt til. Þarna er einfaldlega mikill meiningarmunur á ferð en breytingartillagan er ekki í anda laganna. Ég er raunar þeirrar skoðunar að hún gangi í bága við lögin eins og þau eru sett fram, en hún er ekki í samræmi við anda laga um rammaáætlun. Ég tel að ef meiri hluti þingsins vill fara fram með þessum hætti verði hann að stíga skrefið til fulls og endurskoða lögin eða vera með sérlög um þessa tilteknu kosti. En það gengur ekki að gera þetta svona á grundvelli núgildandi laga um rammaáætlun því að það mun aldrei halda fyrir dómstólum.