144. löggjafarþing — 108. fundur,  19. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[21:51]
Horfa

Vigdís Hauksdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er þannig að séu lögin og þingsályktanirnar lesnar saman var rætt um það að verkefnisstjórnin hefði kannski farið örlítið út fyrir valdsvið sitt og farið inn á svið sem hún átti raunverulega ekki að fara inn á og það hefur verið dregið til baka, þau gengu kannski of langt í að meta umhverfisáhrif. En varðandi það sem hv. þingmaður vísar í, fyrst er að ákvarða virkjunarkostina, taka ákvörðun um þá að setja viðkomandi virkjunarkosti í nýtingarflokk og svo verður farið í umhverfismat framkvæmda. Þá kemur til umræðu og skoðunar hvort laxastofninn í Þjórsá sé það viðkvæmur að það eigi á þeim grunni ekki að fara í þessar virkjanir. Þetta á hv. þingmaður að vita vel. Þannig að því tvennu má ekki rugla saman. Það var á þeim grunni sem ég byggði afstöðu mína á (Forseti hringir.) síðasta kjörtímabili, vegna þess að þetta var komið (Forseti hringir.) of langt að þessu mati, en faglega matið er eftir.