144. löggjafarþing — 108. fundur,  19. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[22:01]
Horfa

Páll Valur Björnsson (Bf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Vigdísi Hauksdóttur fyrir ræðuna, hún var ágæt. En ef ég hefði nú vitað að hún ætlaði að fara lesa upp úr ævisögu Össurar Skarphéðinssonar er ég ekki viss um að ég hefði skipt við hana.

Hvað sem öllu líður þá langar mig til að spyrja hv. þingmann, sem er fædd og uppalin austur í Flóa, alveg burt séð frá allri verkefnisstjórn og rammaáætlun og öðru: Ég er hérna með bréf frá 38 bændum sem búa á bökkum Þjórsár og frá einu veiðifélagi þar sem þeir fara í gegnum þessi mál, þessar virkjanir, þrjár virkjanir í neðri hluta Þjórsár. Finnst hv. þingmanni það ekki vega svolítið þungt að fólk sem er fætt og uppalið á bökkum Þjórsár komi fram með rök í þessu bréfi fyrir því að þetta muni eyðileggja ævistarf þeirra? Hvað finnst hv. þingmanni um það? Finnst henni ekki að það ætti að vega þyngra í þessu máli hvað fólkið sem býr á staðnum segir?

Það er líka talað rosalega mikið um að við þurfum að fara að virkja til að koma hjólum atvinnulífsins af stað. Hvaða hjól er sprungið í atvinnulífinu? Mig bara langar til að vita það.