áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegi forseti. Ég kem hingað til að bera af mér sakir og sömuleiðis hv. 4. þm. Reykv. n., Össuri Skarphéðinssyni. Hv. þm. Vigdís Hauksdóttir fór inn á það að í bók hv. 4. þm. Reykv. n. væri lýst hrossakaupum fyrri ríkisstjórnar. Það er ekki í mínum verkahring að verja gjörðir fyrri ríkisstjórnar. Mér þykir hins vegar mjög vænt um rökfræðina og mér finnst mikilvægt að skoðanir okkar séu byggðar á einhverju sem er rökrétt. Það er ekki rökrétt að áætla að orð eins sem eru túlkuð af öðrum séu orð þess sem sagði þau upprunalega. Lýsing hv. þm. Össurar Skarphéðinssonar í bók sinni er lýsing hv. þm. Össurar Skarphéðinssonar, ekki þeirra sem höfðu þau sjónarmið sem Össur Skarphéðinsson var að lýsa. Þetta á ekki að vera flókið.
Sömuleiðis frábið ég mér ásakanir um að ég hafi sagt að hv. þm. Össur Skarphéðinsson væri að segja ósatt. Ég sagði ekkert slíkt, ég hef ekkert sagt (Forseti hringir.) sem er nálægt því. Ég frábið mér slíkar ásakanir.