144. löggjafarþing — 108. fundur,  19. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[22:26]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta atvinnuvn. (Lilja Rafney Magnúsdóttir) (Vg) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Ef ráðherrar geta ekki verið viðstaddir umræðuna af persónulegum ástæðum held ég að það sé bara rétt að við ljúkum fundi núna. Er það ekki rétt hugsað hjá mér, herra forseti?

Mér finnst að við þurfum að gera hlé af því að þingflokksformenn og forsætisnefnd verða að fara yfir það hvað er þingleg meðferð. Þær tillögur sem hafa komið hér fram um að taka Hagavatnsvirkjun út úr þessari breytingartillögu eru ekkert í hendi. Hv. þm. Páll Jóhann Pálsson hristir alltaf hausinn þegar það er nefnt að það eigi að taka hana út, að hún sé ekki með, en hv. þm. Jón Gunnarsson kinkar alltaf kolli, að hún sé inni. Hvernig eigum við að vita hvað er hvað ef við horfum á þessa hv. tvíhöfða tala hvorn í sína áttina? Ég held að það sé alveg kominn tími til að gera þinghlé enda er þetta orðið gott í dag og húslestri lokið (Forseti hringir.) hjá Framsóknarflokknum.