144. löggjafarþing — 108. fundur,  19. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[23:05]
Horfa

Ásmundur Friðriksson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég held að það sé mikilvægt að réttar minni hlutans sé líka gætt í þinginu, algjörlega. Bent hefur verið á ýmsar leiðir í því og það er hægt að vísa til nágrannalandanna, hvernig þau fara að og margt af því sem þar hefur komið fram er mér ágætlega að skapi, ég þarf auðvitað að setjast betur yfir það til þess að kynna mér það betur og hvernig það hentar okkur í þessu þingi. En ég tek undir með hæstv. þingmanni að við þurfum að finna þessar leiðir. Ég ber virðingu fyrir því að minni hlutinn sé að verja málstað sinn, en þá er leiðin sú að 40 prósentin sættast við 60 prósentin á einhverri leið, í miðri leið, í miðri á, um einhverja niðurstöðu. Það getur enginn í svona máli unnið fullnaðarsigur. Kannski verður aldrei neinn sigurvegari í málinu.