áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegi forseti. Eins og ég hef skilið þetta þá er í rauninni sátt í þjóðfélaginu að mestu leyti um að við séum með ákveðna löggjöf, ferli, verkferla varðandi þessa miklu vinnu að flokka virkjunarkosti og ákveðin sátt sé um verkefnisstjórnina. Það er kannski einmitt þess vegna sem við erum hérna svolítið æst og tölum mikið í þessu máli vegna þess að okkur finnst að sáttin hafi verið rofin með því að gera breytingartillögu við þingsályktunartillöguna. Ég minni á að það var ekki einu sinni hæstv. umhverfisráðherra sem lagði þessa kosti fram heldur meiri hluti atvinnuveganefndar.
Kæmi ekki til greina að nefndin tæki aftur málið til sín? Þar er oft unnið í meiri sátt eins og hv. þingmaður nefndi. Telur hv. þingmaður koma til greina að skoða betur Urriðafoss (Forseti hringir.) og Skrokköldu, setja það aftur í ferli?