áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegi forseti. Ég verð að segja alveg eins og er að það gleður mann örlítið að sá stjórnarþingmaður sem hefur setið hér umræðuna skilur hvað það er og heyrir hvað það er sem við erum að kalla eftir. Hann er kannski ekki sammála því en hann heyrir það og það er meira en sagt verður um flesta þá stjórnarþingmenn sem hér hafa komið upp. Ég vona að nú fari menn raunverulega í það að setjast niður til þess að reyna að átta sig á því hvernig hægt er að vinna með þessa stöðu. Upp á það verður ekki boðið á lýðræðislegri samkomu eins og Alþingi Íslendinga að menn séu hér að gera einhverjar breytingar sem hafa meiri háttar áhrif í síðari umr. um þingsályktunartillögu. Ég trúi því bara ekki fyrr en ég tek á því að forseti ætli að standa fyrir slíkum gerningum. Þá verður þessa þings minnst í sögunni fyrir það að hafa farið ansi hressilega út af sporinu, það verð ég að segja, vegna þess að hér er verið að ganga á rétt okkar þingmanna (Forseti hringir.) til þess að fjalla faglega um mál.