144. löggjafarþing — 108. fundur,  19. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[23:21]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Ég held að engum blöðum sé um það að fletta að þetta útspil hv. þm. Ásmundar Friðrikssonar í umræðunni í kvöld hljóti að marka nokkur þáttaskil og gera það enn ljósara hve nauðsynlegt það er að fresta í það minnsta umræðunni ef ekki að hætta henni og kalla málið inn til nefndar og taka það þar til umfjöllunar með það að markmiði að leita lausna á þessari stöðu, sem er, eins og hv. þingmaður lýsti ágætlega, algerlega óþolandi. Ég held að þingmaðurinn hafi notað það orð að það væri okkur til skammar í merkingunni „sér og öðrum þingmönnum“.

Ég held að engum blöðum sé um það að fletta að við höfum mörg verið að kalla eftir því að einmitt þetta verði gert. Málatilbúnaðurinn allur er þannig að hann mun augljóslega ekki ná fram (Forseti hringir.) að ganga hér í þinginu. Nú þegar leiðandi aðili í nefndinni sjálfri og stjórnarmeirihlutanum segir það er auðvitað ástæða til að hlusta.