144. löggjafarþing — 108. fundur,  19. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[23:24]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseti hafði litið á það sem raunhæfan kost að hv. 8. þm. Norðaust., Þórunn Egilsdóttir, gæti flutt ræðu sína hér í kvöld en nú fer að verða ljóst að af því getur ekki orðið. Nú spyr forseti hvort þeir tveir hv. þingmenn sem hafa óskað eftir að taka til máls um fundarstjórn forseta muni vilja taka til máls.