dagskrá næsta fundar.
Hæstv. forseti. Ég styð þá dagskrártillögu, breytingu á dagskrá sem hér liggur fyrir. Líkt og bent hefur verið á ítrekað um fundarstjórn forseta á liðnum dögum er það mál sem hér er á dagskrá ekki tækt til umræðu. Boðuð hefur verið munnleg breytingartillaga við málið. Hana höfum við ekki fengið að sjá skriflega. Þetta er síðasta umræðan um þetta mál. Við verðum að hafa málið fullbúið þegar við ræðum það og því miður hefur berlega komið í ljós í þeim ræðum sem hv. þingmenn meiri hlutans hafa flutt hér í dag að þeir virðast hreinlega ekki vita hvernig málið er vaxið. Þetta er eina umræðan sem eftir er. Þess vegna verður að taka málið aftur til nefndar og til að það sé hægt þarf að breyta dagskránni. Þess vegna eigum við að styðja það að dagskránni verði breytt.