144. löggjafarþing — 109. fundur,  20. maí 2015.

dagskrá næsta fundar.

[10:33]
Horfa

Guðmundur Steingrímsson (Bf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Breytingartillaga meiri hluta atvinnuveganefndar er kannski ólögleg og hún er kannski ekki í samræmi við rammaáætlun, hún er kannski ekki fagleg, en greiðum bara atkvæði um hana, samþykkjum hana og leitum svo sátta. Þetta er tilboð stjórnarmeirihlutans. Maður hlýtur að nota sinn eina rétt sem maður hefur sem er bara að tala og segja skoðun sína til þess að mótmæla þessu tilboði og reyna að segja stjórnarmeirihlutanum að þetta er óásættanlegt.

Tökum eina staðreynd málsins. Urriðafossvirkjun, Holtavirkjun, Skrokkalda. Það hvort þessir virkjunarkostir fari í nýtingarflokk er verið að ræða annars staðar. Það er verið að ræða þetta samkvæmt lögbundnu ferli í verkefnisstjórn rammaáætlunar. Bara af þeirri ástæðu er algjör óþarfi fyrir okkur að eyða tíma okkar hér til þess að ræða þetta mál. Algjör óþarfi.

Og aðeins um dagskrárvaldið. Það er mikið vald sem forseti fær. Ég þarf að sætta mig við það að mál eftir mál sem (Forseti hringir.) ég legg fram á þinginu komi ekki einu sinni til umræðu í þingsal og varla umræðu í nefnd. Ég þarf að sætta mig við það. En þegar svona (Forseti hringir.) er farið yfir strikið í beitingu þessa valds, dagskrárvalds, þá hlýt ég (Forseti hringir.) að óska eftir einu sinni rökstuðningi og svörum við spurningum.