dagskrá næsta fundar.
Herra forseti. Ég styð þessa dagskrártillögu af ýmsum ástæðum. En ég vil nefna sérstaklega að breytingartillagan sem hefur verið boðuð hér er ekki komin fram, þannig í rauninni vitum við ekki alveg hvað nákvæmlega við erum að ræða hér og hvað það verður sem gengur til atkvæða að lokinni umræðu.
Í öðru lagi vil ég nefna að fram hefur komið í umræðunni vanþekking flutningsmanna tillögunnar á lögum um rammaáætlun, á sögu þeirrar vinnu sem fram hefur farið á undanförnum 20 árum um rammaáætlun og nú síðast vanþekking á þeim gögnum sem þó hafa borist nefndinni og liggja undir í málinu. Það er ekki ágreiningur um tillögu hæstv. umhverfisráðherra. Það er ágreiningur um breytingartillögu meiri hluta atvinnuveganefndar sem ljóst er að (Forseti hringir.) byggir á vægast sagt afar veikum grunni.