144. löggjafarþing — 109. fundur,  20. maí 2015.

dagskrá næsta fundar.

[10:55]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Ég er nú bara dauðlegur maður, en áðan stóð ég í pontu og spáði fyrir um það að þetta mundi fara nákvæmlega svona. Nákvæmlega þannig að nákvæmlega meiri hlutinn (Gripið fram í.) greiðir atkvæði gegn tillögu um dagskrá, athugið, tillögu um dagskrá, ekki neitt efnisatriði og minni hlutinn greiðir atkvæði með tillögunni. Þetta er auðvitað það sem við eigum að venjast. Þetta er ástæðan fyrir því að það er tómt tal að hlusta á m.a. hæstv. forsætisráðherra ögra alltaf minni hlutanum og segja: Komið í atkvæðagreiðslu, komið bara í atkvæðagreiðslu, við skulum bara (Gripið fram í.) útkljá þetta.

Ég velti fyrir mér hvernig það væri í þjóðfélaginu ef við ætluðum að ákveða þetta þannig að bara 60% þjóðarinnar skiptu máli, 40% skiptu engu máli í fjögur ár í röð. Hvernig væri það? Væri það lýðræði? (SII: 49,8%.) Væri það skynsamlegt?

Þetta er nákvæmlega eins og spá mátti fyrir og þurfti enga yfirnáttúrulega hæfileika til. Auðvitað verða þessar breytingartillögur samþykktar sem eru bornar fram af hv. (Forseti hringir.) atvinnuveganefnd af sömu ástæðu. (Forseti hringir.) Mér finnst bara rétt að við hættum að blekkja okkur um það hvernig hlutirnir virka hérna.