144. löggjafarþing — 109. fundur,  20. maí 2015.

breytingartillögur við rammaáætlun.

[11:00]
Horfa

Katrín Júlíusdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Ég er að reyna að átta mig á því hvaða breytingartillögur við erum með á dagskrá í því máli sem er hér næst. Það er búið að lýsa því hér yfir að það sé forgangsmál ríkisstjórnarinnar að ljúka rammanum. Hvað af því er forgangsmál? Er það upphaflega tillagan? Er það breytingartillaga Jóns Gunnarssonar? Er það samkomulag Sigrúnar Magnúsdóttur (Gripið fram í.) við meiri hluta atvinnuveganefndar sem síðan er ekki alveg ljóst hvort hún styður miðað við það sem kemur fram í Fréttablaðinu í dag þar sem hún segir að hún sé ekki til í að gefa upp afstöðu sína?

Þessi umræða er orðin algjör þvæla, algjör della, og menn eru orðnir svo stjórnlausir í stjórnarliðinu að frammíköll af þeirra hálfu eru eina framlag þeirra til þessarar umræðu. Sáttarhöndin felst í frammíköllum sem eru tilraunir til þess að þagga niður í okkur sem erum að reyna að eiga hér samtal við þetta fólk. Það er allt og sumt.

Gerum hlé á þessum fundi, skýrum stöðuna og (Forseti hringir.) sjáum hvort við getum ekki náð einhverri sátt í þessu máli. Við höfum sýnt fram á annað eins hér.