144. löggjafarþing — 109. fundur,  20. maí 2015.

breytingartillögur við rammaáætlun.

[11:04]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseti hefur eftir föngum reynt að raða niður þeim sem hafa óskað eftir að komast á mælendaskrá. Það getur verið þrautin þyngri þegar margir kveðja sér hljóðs á sama tíma, en forseti hefur gert það eftir bestu samvisku.