144. löggjafarþing — 109. fundur,  20. maí 2015.

breytingartillögur við rammaáætlun.

[11:08]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg):

Hæstv. forseti. Ég vil byrja á að lýsa vonbrigðum mínum með þá niðurstöðu sem varð í atkvæðagreiðslunni. Vonbrigði mín felast ekki hvað síst í því að hér greiddu þingmenn atkvæði, vonandi alveg samkvæmt samvisku sinni, ég ætla svo sem ekki að halda neitt annað, en það sem mér fannst svo dapurlegt var að í þeim ræðum sem þeir fluttu opinberaðist, að því er mér virtist, algjör vanþekking þeirra á því hvernig málið er hérna búið. Það finnst mér svo gríðarlega dapurlegt og þess vegna tek ég undir og biðla til forseta að hann geri hlé á fundinum, kalli þingflokksformenn að borðinu og við reynum að koma málinu í einhvern þann farveg (Forseti hringir.) að við séum að minnsta kosti að tala um nokkurn veginn sama hlutinn hérna.