breytingartillögur við rammaáætlun.
Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir að forseti hyggst verða við þeirri ósk að haldinn verði fundur með þingflokksformönnum. Ég bið virðulegan forseta að koma vel undirbúinn til þess fundar vegna þess að það er tækifæri í stöðunni og í umræðunni eins og hún hefur lagst undanfarna daga. Ef manni tekst að vinna sig í gegnum frammíköll og útúrsnúninga einstakra þingmanna meiri hlutans hefur glitt í þau sjónarmið að það þurfi að skoða þessi mál betur. Ég bið virðulegan forseta að gera það sem í hans valdi stendur til að það verði gagn í þessum fundi með þingflokksformönnum, að þar verði ekki smækkuð útgáfa af orðaskaki heldur verði þess virkilega freistað að leita leiða til að nálgast einhverja skaplega niðurstöðu í þessu máli.