breytingartillögur við rammaáætlun.
Virðulegur forseti. Það er nú liðin ein vika frá því að ég fékk í hendur úrskurð forseta um það hvort það mál sem hér hefur verið sett á dagskrá sé þingtækt eða ekki. Ég hef skoðað það allan þennan tíma. Ég hef líka heyrt í tvígang, ef ekki þrígang, forseta gera grein fyrir því úr forsetastóli að hann hafi kynnt sér álit tveggja ráðuneyta sem hafa komist að þveröfugri niðurstöðu við forsetann. Þess vegna sakna ég þess að í úrskurði forseta, þar sem hann kemst að þeirri niðurstöðu að honum sýnist rökin frekar falla í þá átt að það sé búið að framkvæma faglega úttekt á þessum virkjunarkostum, að hann bregðist við. Hann bregst hvergi við röksemdum ráðuneytanna sem eru faglega sett fram með efnisgóðum rökum. Hann (Forseti hringir.) ávarpar hvergi þau tvö álit sem hann segist hafa kynnt sér. Ég sakna þess og vildi gjarnan heyra rökstuðning gegn rökum ráðuneytanna.